top of page

Þegar framhjáhald kemur upp á yfirborðið

Þegar framhjáhald kemur upp í samböndum er það áfall, traustáfall og tengslaáfall. Fyrstu dagana eftir að framhjáhald kemur upp er eðlilegt að dagarnir séu í móðu og maður áttar sig ekki alveg á því hvað er að gerast í kringum mann.

Það er gott að muna að sá sem hélt framhjá vissi alltaf hvað hvar að gerast meðan sá sem fær fréttir af því er að heyra af atburðarrás sem er meiðandi í fyrsta sinn og því líklegt að fólk sé á misjöfnum stað. Auðvitað skipta aðstæður máli, hversu lengi hefur sambandið varið, hvað er mikið í spilinu og af hverju var framhjáhaldið. Stundum er framhjáhald lokapunktur sem setur skýran punkt aftan við sambandið og er að einhverju leiti leið til að fara hratt út úr sambandinu. Ef staðan er þannig að framhjáhald er lokapunktur, hefst mikið sorgarferli og oft erfiðir tímar með miklum tilfinningum. Því miður er algengt í þessum aðstæðum að sá sem heldur framhjá vill ekki bæta meiru við eða ræða framhjáhaldið frekar heldur setja punkt og slíta á samskipti og losa sig alveg frá. Slík sambandsslit eru alltaf mjög sársaukafull og sérstaka fyrir þann sem haldið var framhjá og slitið á samskiptin þar sem viðkomandi er mjög líklega í lausu lofti. Ef hægt er að gefa einhver ráð í þessum aðstæðum mælum við alltaf með því að fólk gefi sér tíma til að skilja þessi endalok þó það taki á og sé sársaukafullt. Ætli fólk að gefa sambandinu séns og athuga hvort forsendur eru fyrir því að halda áfram í sambandinu er núm er eitt að ljúka framhjáhaldinu og setja skýran punkt þar á bakvið, hafa mörk skýr og uppi á yfirborðinu og setja sér sameiginlegar, raunhæfar samskiptareglur utan sambandsins. Þetta getur verið erfitt ferli en er nauðsynlegt til að geta byrjað að byggja traust. Næsta skref er að setja samskiptin upp á yfirborðið og í hverju þau fólust án þess að vera með myndrænar lýsingar og oft þarf að fara oft yfir atburðarásina, samhengið og aðstæður.


Að átta sig á því hvaða áhrif framhjáhald hefur og hvaða áhrif það mun hafa er mikilvægt samtal sem oft þarf að endurtaka og mun taka tíma að vinna úr. Hér er mikilvægt að vera raunhæf og að loforð um breytta hegðun sé eitthvað sem stenst tímans tönn en ekki ofurkvíðin viðbrögð sem hverfa svo þegar meiri ró er komin á heimilið. Langflest pör þurfa utanaðkomandi aðstoð við að fikra sig út úr framhjáhaldi, sama með hverjum það samtal á sér stað er hlutlaus þriðji aðili ómetanlegur stuðningur.

Recent Posts

See All
Að vinna sig úr framhjáhaldi

Þegar upp kemst um framhjáhald er það áfall. Traustið er brotið og farið og fólk efast um sambandsgrunninn. Allskonar tilfinningar gera vart við sig hjá báðum aðilum, reiði, skömm og oft ekki síst sor

 
 
 

Comments


Hönd í hönd

ST.JO Lífsgæðasetri

Hafnarfjörður

soffia@hondihond.is/

soffia.ellertsdottir@hondihond.is

s. 8624804

Mánudagar 9-17

Miðvikudagar 9-17

Fimmtudagar 16-18

Föstudagar 9-17

  • Instagram
  • Black Facebook Icon

Takk fyrir að hafa samband

@ Hönd í hönd ráðgjöf ehf

bottom of page